Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 22. maí 2021 18:34
Victor Pálsson
Myndband: Suarez hágrét eftir sigurinn í dag
Mynd: Getty Images
Luis Suarez reyndist Atletico Madrid gríðarlega mikilvægur á þessu tímabili en hann kom fyrir leiktíðina frá Barcelona.

Það kom mörgum á óvart þegar Suarez var seldur frá Barcelona en hann lék með liðinu frá 2014 til 2020.

Úrúgvæinn skoraði sigurmarkið gegn Real Valladolid í dag sem reyndist markið til að tryggja Atletico titilinn þetta árið.

Suarez skoraði alls 21 deildarmark fyrir Atletico í titilsigrinum en hann vann síðast titilinn með Barcelona árið 2019.

Eftir leikinn þá hágrét Suarez á vellinum en hann talaði þar við fjölskyldu sína í gegnum síma.


Athugasemdir
banner
banner