Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 22. júlí 2021 07:00
Ívan Guðjón Baldursson
Chelsea villl skipta á Abraham og Rice
Mynd: Getty Images
Tammy Abraham, sóknarmaður Chelsea, er eftirsóttur af úrvalsdeildarfélögum þar sem hann virðist ekki eiga mikla framtíð hjá þeim bláklæddu.

Arsenal er meðal áhugasamra félaga en enskir fjölmiðlar greina frá því að Abraham gæti endað hjá West Ham.

Chelsea hefur miklar mætur á Declan Rice, miðjumanni West Ham og enska landsliðsins, og vill skipta á leikmönnum. Hamrarnir myndu þá fá Abraham og pening fyrir miðjumanninn öfluga.

Abraham er 23 ára gamall og hefur skorað 30 mörk í 82 leikjum með Chelsea.
Athugasemdir
banner
banner
banner