Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 22. ágúst 2021 08:00
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Arteta með slæmar minningar frá síðustu viðureign gegn Lukaku
Mynd: Getty Images
Það er Lundúnarslagur í kvöld milli Arsenal og Chelsea á Emirates vellinum, heimavelli Arsenal.

Það er búist við því að Romelu Lukaku muni leika sinn fyrsta leik fyrir Chelsea frá því hann kom til félagsins frá Inter Milan.

Mikel Arteta þjálfari Arsenal hefur ekki góðar minningar frá því þeir mættust síðast. Það var árið 2014 þegar Everton og Arsenal mættust. Þá var Lukaku leikmaður Everton og Arteta leikmaður Arsenal.

Everton vann leikinn 3-0 og Lukaku skoraði eitt og Arteta varð fyrir því óláni að skora sjálfsmark.
Athugasemdir
banner
banner
banner