Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 23. mars 2021 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Leiknir og Errea ná 30 ára samstarfi með nýjum samning
Mynd: Leiknir
Leiknir Reykjavík og Errea á Íslandi endurnýjuðu samning sín á milli til næstu fjögurra ára eða til 2025.

Errea og Leiknir eiga eitt lengsta samband milli íþróttavörumerkis og íþróttafélags hérlendis, samband sem nær aftur til ársins 1995 og hefur verið afar ánægjulegt og gæfuríkt.

Það voru þeir Stefán Páll Magnússon framkvæmdastjóri Leiknis og Þorvaldur Ólafsson eigandi Errea á Íslandi sem skrifuðu undir samninginn í Breiðholti í síðustu viku.

Allan fatnað Leiknis má finna inná www.errea.is/leiknir
Athugasemdir
banner
banner