Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   lau 23. mars 2024 13:03
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Fabregas: Maddison er fullkominn leikmaður
Mynd: Getty Images

Cesc Fabregas fyrrum leikmaður Arsenal og Chelsea í ensku úrvalsdeildinni hefur hrósað James Maddison miðjumanni Tottenham í hástert.


Fabregas var frábær leikmaður á sínum tíma en hann lék einnig með Barcelona.

Hann var til viðtals í hlaðvarpsþættinum Planet Premier League á BBC þar sem hann var spurður út í Maddison.

Maddison gekk til liðs við Tottenham frá Leicester í sumar en meiðsli hafa gert honum erfitt fyrir. Hann hefur samt sem áður komið sterkur inn í liðið.

„Maður fann það strax að hann er með sjálfstraust. Hann vill mikið vera með boltann og búa til færi. Hann er góður með boltann, leggja upp og skora mörk. Hann er fullkominn leikmaður í mínum augum," sagði Fabregas.

„Hann og Son tengja mjög vel saman. Sem þjálfari er ég viss um að maður þarf að aðlaga leikstílinne ftir styrkleikum leikmanna og eftir því sem þeir eru betri er það auðveldara. Hann er einn af þeim sem maður vill alltaf hafa í liðinu."


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner