Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
banner
   lau 23. mars 2024 13:31
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Greenwood orðaður við Juventus
Mynd: EPA

Mason Greenwood er gríðarlega eftirsóttur en ítalski miðillinn Gazzetta dello Sport greinir frá því að Juventus hafi áhuga á að fá hann til liðs við sig næsta sumar.


Greenwood er á láni hjá Getafe frá Manchester United en hann hefur skorað sex mörk og lagt upp fimm í 26 leikjum í spænsku deildinni.

Miklar vangaveltur eru um framtíð hans en samningur hans við Man Utd rennur út sumarið 2025.

Ólíklegt þykir að Getafe muni geta haldið honum en United hyggst selja hann hæstbjóðanda í sumar.

Juventus ætlar að styrkja vængstöðurnar í sumar en Felipe Anderson leikmaður Lazio er einnig orðaður við félagið.


Athugasemdir
banner
banner
banner