Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. mars 2024 11:09
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Guðlaugur Victor æfði ekki í dag - Jóhann Berg tók upphitun
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

Íslenska landsliðið er við æfingar í Búdapest þessa stundina en það voru ekki allir sem tóku fullan þátt á æfingunni.


Guðlaugur Victor Pálsson æfði ekki en hann tók rölt með sjúkraþjálfara liðsins.

Fulltrúar Fótbolta.net á svæðinu fylgdust með fyrstu fimmtán mínútunum af æfingunni en þar var Jóhann Berg Guðmundsson byrjaður að hita upp eftir meiðsli.

Enn er þó óvíst með þátttöku hans í leiknum gegn Úkraínu í Póllandi á þriðjudaginn.

Breytingar hafa verið gerðar á landsliðshópnum en Stefán Teitur Þórðarson hefur bæst í hópinn en Arnór Sigurðsson hefur yfirgefið hann eftir að hafa orðið fyrir meiðslum í leiknum gegn Ísrael.


Útvarpsþátturinn - Jói Kalli, Bjarki Már og Elvar Geir um landsliðið
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner