Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. maí 2021 14:34
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Davíð Þór: Þeim fannst þeir vera klárir
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH tapaði sínum fyrsta leik í sumar er þeir mættu KR í gær. Leiknum lauk með 2-0 sigri KR. Athygli vakti að FH þurfti að gera tvöfalda breytingu eftir tuttugu mínútna leik. Eggert Gunnþór Jónsson og Guðmann Þórisson þurftu að víkja.

„Guðmann lagðist niður og þurfti skiptingu. Vonandi ekkert alvarlegt. Eggert Gunnþór einnig tekinn af velli. Tvöföld skipting snemma hjá FH vegna meiðsla." Skrifaði Stefán Marteinn Ólafsson í textalýsingu frá leiknum.

Davíð Þór Viðarsson þjálfari FH sagði að þeir töldu sig tilbúna í leikinn.

„Þeir voru í upphitun og fannst þeir vera klárir, svo þegar þú kemur út í leikinn þá er þetta önnnur ákefð og annað slíkt og þeir fundu að það var ekki sniðugt fyrir þá að halda áfram að spila þannig að ég tók þá útaf og svo þurfum við bara að sjá til á morgun og mánudaginn hvort það sé einhver möguleiki hvort þeir geti verið með á móti Leikni."

FH fer í heimsókn á Domusnova völlinn þriðjudaginn 23 maí.
Davíð Þór: Þessi margfræga síðasta sending sem var að klikka hjá okkur
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner