Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. maí 2021 15:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Þýskaland: Guðlaugur Victor lagði upp mark í sigri Darmstadt
Var þetta síðasti leikur Gulla fyrir Darmstadt?
Var þetta síðasti leikur Gulla fyrir Darmstadt?
Mynd: Getty Images
Holstein Kiel 2-3 Darmstadt

Guðlaugur Victor Pálsson var í byrjunarliði Darmstadt sem tók á móti Holstein KIel í lokaumferð næstefstu deildar í Þýskalandi í dag.

Darmstadt vann leikinn með þremur mörkum gegn tveimur. Guðlaugur Victor lék allan leikinn og gerði sér lítið fyrir og lagði upp annað mark Darmstadt.

Þrátt fyrir tapið fara Holstein Kiel í umspil gegn Köln um sæti í efstudeild á næstu leiktíð. Með sigrinum í dag fer Darmstadt upp um eitt sæti og enda því tímabilið í sjönuda sæti.

Fréttir herma að Guðlaugur Victor muni taka slaginn með Schalke á næstu leiktíð en þeir féllu úr efstu deild í ár.
Athugasemdir
banner
banner