Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 23. júní 2022 20:57
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Glódís fer á kostum í nýrri auglýsingu - „Þetta gátum við"
Icelandair
Glódís Perla og Karólína Lea, leikmenn Bayern.
Glódís Perla og Karólína Lea, leikmenn Bayern.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Það styttist alltaf í Evrópumótið í Englandi þar sem Ísland er á meðal þáttökuþjóða.

Í aðdraganda mótsins hefur N1, einn af styrktaraðilum KSÍ, gefið út auglýsingu þar sem Glódís Perla Viggósdóttir, varnarmaður Íslands, er í aðalhlutverki.

Í auglýsingunni talar Glódís til síns yngra sjálfs og fer yfir leiðina á toppinn. „Fyrsta mál er að æfa, æfa og æfa meira. Þegar þú nennir ekki meiru, einmitt þá heldurðu áfram,” segir Glódís.

Glódís spilar í dag með þýska stórveldinu Bayern München og hefur verið lykilmaður í landsliðinu í mörg ár. „Þetta gátum við, hvað nú?”

Það var fyrrum landsliðsmarkvörðurinn Hannes Þór Halldórsson sem leikstýrði þessari gæsahúðar auglýsingu sem má sjá í heild sinni hér að neðan.


Athugasemdir
banner
banner
banner