Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. júlí 2022 17:20
Ívan Guðjón Baldursson
4. deild: Tindastóll tók KÁ í kennslustund
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Tindastóll 5 - 2 KÁ
1-0 Jóhann Daði Gíslason ('15 )
2-0 Eysteinn Bessi Sigmarsson ('28 )
3-0 Konráð Freyr Sigurðsson ('33 )
3-1 Egill Örn Atlason ('46 )
4-1 Hólmar Daði Skúlason ('65 )
4-2 Þórður Örn Jónsson ('75 )
5-2 Benedikt Kári Gröndal ('85 )


Tindastóll er kominn aftur á topp B-riðils 4. deildar eftir öruggan sigur gegn KÁ.

Stólarnir sýndu yfirburði í fyrri hálfleik og leiddu með þriggja marka mun í leikhlé en það tók gestina innan við mínútu að minnka muninn í síðari hálfleik.

Það dugði þó ekki til því Sauðkrækingar svöruðu með marki og urðu lokatölur 5-2.

Tindastóll jafnar þar með KFK á toppi riðilsins en KFK á leik til góða. KÁ er í þriðja sæti, sjö stigum á eftir.


Athugasemdir
banner