Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 23. júlí 2022 14:46
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Lið í Championship deildinni hafa mikinn áhuga á Hannibal
Hannibal í baráttunni við Andy Robertson bakvörð Liverpool á síðustu leiktíð
Hannibal í baráttunni við Andy Robertson bakvörð Liverpool á síðustu leiktíð
Mynd: Getty Images
Hinn 19 ára gamli Hannibal Mejbri miðjumaður Manchester United verður að öllum líkindum sendur á lán í sumar.

Mejbri lék tvo leiki undir stjórn Ralf Rangnick í ensku úrvalsdeildinni á síðustu leiktíð og hefur tekið þátt í síðustu tveimur æfingaleikjum liðsins.

Samkvæmt heimildum Sky Sports er félagið ánægt með Mejbri á undirbúningstímabilinu og telji að hann muni hafa gott af því að spila reglulega.

Championship liðin Birmingham, West Brom, Millwall og Middlesbrough hafa öll áhuga á þessum landsliðsmanni Túnis.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner