Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 23. ágúst 2021 16:00
Elvar Geir Magnússon
Torreira nálgast Fiorentina
Mynd: Getty Images
Fiorentina færist nær því að tryggja sér úrúgvæska miðjumanninn Lucas Torreira frá Arsenal samkvæmt ítölskum fjölmiðlum.

Torreira lék á lánssamningi hjá Atletico Madrid á síðasta tímabili.

Sky Sport segir að bæði Fiorentina og Eintracht Frankfurt vilji fá Torreira en þessi fyrrum leikmaður Sampdoria er spenntur fyrir þeim möguleika að snúa aftur í ítölsku A-deildina.

Fiorentina hefur einnig áhuga á að fá Miralem Pjanic, leikmann Barcelona.

Talið er að félagið muni halda Dusan Vlahovic í eitt tímabil í viðbót en serbneski sóknarmaðurinn er eftirsóttur.

Fiorentina tapaði fyrir Roma í fyrstu umferð ítölsku deildarinnar um helgina.
Athugasemdir
banner
banner