Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 23. september 2018 13:07
Magnús Már Einarsson
Byrjunarlið FH og Vals: Guðjón Pétur inn
Guðjón Pétur Lýðsson kemur inn í lið Vals.
Guðjón Pétur Lýðsson kemur inn í lið Vals.
Mynd: Fótbolti.net - Bára Dröfn Kristinsdóttir
Atli Guðna kemur inn í lið FH.
Atli Guðna kemur inn í lið FH.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
FH og Valur mætast í næstsíðustu umferð Pepsi-deildarinnar á Kaplakrikavelli klukkan 14:00. Valur getur tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með hagstæðum úrslitum í dag en að sama skapi geta FH-ingar komist í Evrópusæti með hagstæðum úrslitum.

Beinar textalýsingar:
14:00 FH - Valur
14:00 ÍBV - Stjarnan
14:00 Fjölnir - Breiðablik
14:00 KR - Fylkir
14:00 KA - Grindavík
14:00 Keflavík - Víkingur R

Steven Lennon og Pétur Viðarsson taka út leikbann hjá FH og Haukur Páll Sigurðsson er í banni hjá Val.

Guðmundur Kristjánsson, Brandur Olsen og Atli Guðnason koma inn í lið FH. Auk Lennon og Péturs fer Kristinn Steindórsson úr liðinu frá því í síðasta leik.

Guðjón Pétur Lýðsson tekur stöðu Hauks í liði Vals auk þess sem Eiður Aron Sigurbjörnsson kemur aftur úr leikbanni og inn í liðið fyrir Ívar Örn Jónsson sem fer á bekkinn.

Byrjunarlið FH
1. Gunnar Nielsen (m)
3. Cédric D'Ulivo
5. Hjörtur Logi Valgarðsson
6. Robbie Crawford
10. Davíð Þór Viðarsson (f)
11. Atli Guðnason
15. Rennico Clarke
16. Guðmundur Kristjánsson
18. Eddi Gomes
23. Jákup Thomsen
27. Brandur Olsen

Byrjunarlið Vals
1. Anton Ari Einarsson (m)
2. Birkir Már Sævarsson
4. Einar Karl Ingvarsson
6. Sebastian Starke Hedlund
9. Patrick Pedersen
10. Guðjón Pétur Lýðsson
16. Dion Acoff
17. Andri Adolphsson
21. Bjarni Ólafur Eiríksson (f)
32. Eiður Aron Sigurbjörnsson
77. Kristinn Freyr Sigurðsson

Beinar textalýsingar:
14:00 FH - Valur
14:00 ÍBV - Stjarnan
14:00 Fjölnir - Breiðablik
14:00 KR - Fylkir
14:00 KA - Grindavík
14:00 Keflavík - Víkingur R
Stöðutaflan
  L U J T ms: mf: mun Stig
0 0 0 0 0 0 0 0 0
Athugasemdir
banner