Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 24. mars 2021 09:30
Victor Pálsson
Jokanovic til í að taka við Sheffield Utd
Mynd: Getty Images
Slavisa Jokanovic, fyrrum stjóri Fulham og Watford, er opinn fyrir því að taka við liði Sheffield United á Englandi.

Sheffield er að öllum líkindum á leið niður úr ensku úrvalsdeildinni og ákvað að reka Chris Wilder fyrr í þessum mánuði.

Jokanovic þekkir vel til næst efstu deildar og kom bæði Fulham og Watford upp í efstu deild áður en sparkið kom.

Undanfarin tvö ár hefur Jokanovic stýrt liði Al-Gharafa í Katar en samningur hans er við það að enda.

Samkvæmt Sky vill félagið halda í Jokanovic sem er þó meira en til í að fara aftur til Englands.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner