Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 24. mars 2024 09:30
Brynjar Ingi Erluson
Dendoncker snýr aftur til Aston Villa í sumar
Mynd: EPA
Belgíski miðjumaðurinn Leander Dendoncker mun snúa aftur til Aston Villa frá Napoli í sumar en þetta segir Fabrizio Romano á X.

Napoli fékk Dendoncker á láni frá Villa í janúarglugganum en hann hefur aðeins spilað 21 mínútu í þremur leikjum í Seríu A.

Ítalska félagið ætlar sér ekki að gera dvölina varanlega og mun hann því snúa aftur til Villa í sumar.

Samkvæmt Romano á Napoli möguleika á að kaupa hann fyrir níu milljónir evra en félagið hefur ekki áhuga á því.

Samningur Dendoncker við Villa rennur út árið 2026 en alls spilaði hann fimmtán leiki með Villa fyrri hluta tímabilsins.

Athugasemdir
banner
banner
banner