Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   sun 24. mars 2024 09:00
Brynjar Ingi Erluson
Napoli virkjar klásúlu í samningi Meret
Mynd: Getty Images
Ítalska félagið Napoli hefur virkjað klásúlu í samningi markvarðarins Alex Meret en hann er nú samningsbundinn út næsta tímabil.

Meret er aðalmarkvörður Napoli en samningur hans átti að renna út í sumar.

Þar sem hann hefur spilað meira en 70 prósent leikja liðsins á tímabilinu hefur Napoli ákveðið að virkja klásúlu í samningnum sem framlengir hann út næsta tímabil.

Óvíst er hvort Meret verði áfram í herbúðum Napoli á næstu leiktíð en félagið mun nú ræða við umboðsmann hans varðandi næstu skref.

Napoli mun annað hvort gera langtímasamning við markvörðinn eða selja hann í sumar.
Athugasemdir
banner
banner