David Silva bestur
Sky Sports er búið að gefa mönnum einkunnir eftir nágrannaslag Manchester United gegn Manchester City.
Mikill munur er á leikmönnum liðanna og eru aðeins fjórir leikmenn Man Utd sem fá yfir 5 í einkunn. Paul Pogba og Ashley Young eru þar á meðal.
David de Gea, Fred og Jesse Lingard voru aftur á móti lélegustu menn vallarins og þótti frammistaða Romelu Lukaku, sem kom inn af bekknum, ekki góð. Þeir fengu allir 4 í einkunn fyrir sinn þátt.
Bestu leikmenn vallarins voru Ederson, markvörður City, og nafnarnir tveir David og Bernardo Silva sem fengu 8 í einkunn.
Man Utd: De Gea (4), Young (6), Darmian (5), Smalling (6), Lindelof (6), Shaw (5), Pereira (5), Fred (4), Pogba (6), Lingard (4), Rashford (5)
Varamenn: Lukaku (4)
Man City: Ederson (8), Walker (6), Kompany (5), Laporte (7), Zinchenko (7), Gundogan (6), Fernandinho (7), David Silva (8), Bernardo Silva (8), Sterling (7), Aguero (7)
Varamenn: Sane (7)
Maður leiksins: David Silva
Athugasemdir