England tryggði sæti sitt í 16-liða úrslitum á Heimsmeistaramótinu í Rússlandi fyrr í dag með 6-1 sigri á Panama.
Harry Kane sem skoraði þrennu í leiknum telur að leikmenn séu ekki að fara fram úr sér þegar þeir segja að þeir trúi því að þeir geti farið alla leið og unnið mótið.
„Við erum ekkert að fara fram úr okkur þegar við segjum að við höfum trú á því að við getum farið alla leið og unnið mótið. Ef þú vilt ná markmiðum í lífinu verður þú að trúa því að þú getir náð þeim," sagði Kane.
England og Belgía eru nú jöfn að stigum í G-riðli og leika úrslitaleika um efsta sætið í riðlinum á fimmtudaginn.
Athugasemdir