Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 24. júlí 2020 20:30
Aksentije Milisic
Chamberlain tapaði veðmáli við Robertson - Þarf að ramma inn treyjuna hans
Mynd: Getty Images
Alex Oxlade-Chamberlain, leikmaður Liverpool, og liðsfélagi hans, Andy Robertson, gerðu veðmál í fyrra á Youtube síðu Liverpool.

Þar sagði Chamberlain að hann myndi ramma inn treyju sem Robertson gaf honum og hengja upp á vegg ef skotinn knái næði 10 stoðsendingum í ensku úrvalsdeildinni á þessu tímabili.

Chamberlain er með eina treyju uppi á vegg heima hjá sér og það er treyja frá Lionel Messi. Nú er hins vegar önnur að bætast við í safnið og fer treyja Robertson upp við hlið treyju Messi.

Robertson átti frábært tímabil skilaði ellefu stoðsendingum í deildinni á þessu tímabili fyrir Englandsmeistara Liverpool.

Hér að neðan má sjá þáttinn.


Athugasemdir
banner
banner
banner