Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 24. ágúst 2021 18:00
Ívan Guðjón Baldursson
Tottenham kaupir Sarr og lánar aftur út til Metz
Mynd: EPA
Tottenham hefur gengið frá öllu varðandi kaup á Pape Matar Sarr, 18 ára miðjumanni Metz í Frakklandi.

Fabrizio Romano greinir frá þessu. Tottenham borgar 15 milljónir evra fyrir táninginn sem á 19 ára afmæli í september. Í kaupsamningnum eru kostnaðarsamar árangurstengdar aukagreiðslur samkvæmt fjölmiðlum í Frakklandi.

Sarr verður lánaður aftur til Metz út tímabilið og gengur svo í raðir Tottenham næsta sumar.

Sarr þykir gríðarlega öflugur og spilaði sinn fyrsta A-landsleik fyrir Senegal á árinu.
Athugasemdir
banner
banner
banner