Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
Brynjar Björn útskýrir útlendingafjöldann
Ómar Ingi: Legghlífunum hans var stolið
Vill breytingar eftir tæklingu Grétars - „Getur eyðilagt ferla hjá mönnum"
Sætasti strákurinn á ballinu - „Hann er 39 ára í líkama sextugs manns"
Bræður eigast við í bikarnum - Síðasta tækifærið að mæta Birki
Haraldur Freyr: Leikurinn spilast eins og við vildum
Höskuldur: Fannst þeir ofan á í grunnatriðum leiksins
Sami Kamel: Þurftum bara að beisla þessa jákvæðu orku
Dóri Árna: Ótrúlega andlaust og ekki líkt liðinu sem ég þekki
Hallgrímur Jónasson: Við stöndum saman sem lið
Árni Freyr: Mér fannst þetta vera víti
Breki Baldurs: Ég er mjög hrifinn af þessu kerfi
Arnar Gunnlaugs: Ótrúlegasta mark sem ég hef séð á þessum velli
Sveinn Þór: Ég held að við höfum aðeins sjokkerað þá pínulítið
Baldvin Borgars: Virkilega sáttur með frammistöðuna hjá mínum mönnum
Rúnar Kristins: Þeir lögðu mikla vinnu í þetta og veittu okkur mjög erfiðan leik
Jökull: Pirrandi leikur
Hetja HK kíkir ekkert niður í bæ: Ekkert mikið að gera þar miðað við í London
Hrannar Bogi eftir hetjulega frammistöðu Augnabliks: Við nálgumst leiki alltaf alveg eins
Fékk afmælisgjöf fyrir leikinn: Ég fékk Þróttaratrefil og nokkrar Stellur
   mán 25. mars 2019 23:12
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Kári: Það er alltaf hægt að vera klár eftir á
Icelandair
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
„Það var svolítið erfitt að koma hingað og sækja stig en engu að síður erum við inn í leiknum löngum stundum," sagði Kári Árnason, varnarjaxl landsliðsins, eftir tap gegn Frakklandi í undankeppni EM í kvöld.

Lestu um leikinn: Frakkland 4 -  0 Ísland

Ísland spilaði með fimm manna varnarlínu í leiknum.

„Það eru rosaleg hlaup þegar þú ert með þriggja manna miðju og enga kantmenn. Menn voru orðnir þreyttir. Þeir eru frábært lið, en við eigum ekki að tapa 4-0."

„Í fyrri hálfleik gekk þetta mjög vel. Það er spurning að breyta eitthvað í seinni hálfleik. Þeir voru búnir að finna lausnir. Það er alltaf hægt að vera klár eftir á."

„Þetta er svakalegt lið. Það var enginn ætlast til þess að við myndum taka stig hérna þó við trúum alltaf á verkefnið. Á endanum var þetta of erfitt."

Það eru mikilvægir leikir framundan í júní. „Þetta eru leikir sem við þurfum að vinna."

Viðtalið er í sjónvarpinu hér að ofan.
Athugasemdir
banner
banner
banner