Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 25. apríl 2021 15:43
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rússland: Arnór í banni þegar CSKA tapaði grannaslagnum
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Spartak 1 - 0 CSKA
1-0 Jordan Larsson ('52 )
Rautt spjald: Ilzat Akhmetov, CSKA ('37)

Spartak lagði granna sína í CSKA í Moskvu-slag í Rússlandi í dag. Jordan Larsson skoraði eina mark leiskins á 52. mínútu leiksins. Áður hafði Ilzat Akhmetov fengið að líta rauða spjaldið fyrir brot sem má sjá hér að neðan.

Arnór Sigurðsson lék ekki með CSKA í leiknum þar sem hann tók út leikbann. Arnór fékk sitt fjórða gula spjald á dögunum. Hörður Björgvin Magnússon er þá fjarri góðu gamni eftir að hafa slitið hásin.

CSKA er í 6. sæti deildarinnar, fjórum stigum frá Evrópusæti.

Athugasemdir
banner