Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 25. ágúst 2021 07:30
Ívan Guðjón Baldursson
The Athletic: PSG búið að hafna tilboðinu í Mbappe
Mynd: Getty Images
The Athletic greinir frá því að franska stórveldið Paris Saint-Germain hafi verið fljótt að hafna 160 milljón evra tilboði frá Real Madrid í franska framherjann Kylian Mbappe.

Hinn 22 ára gamli Mbappe er talinn meðal bestu knattspyrnumanna heims og á aðeins eitt ár eftir af samningi sínum við PSG.

Franska stórveldið hefur ekki áhuga á að fá 160 milljónir í kassann fyrir Mbappe heldur vill félagið frekar halda honum til að sleppa honum frá sér á frjálsri sölu næsta sumar.

Það er ekki leyndarmál að Mbappe vill skipta yfir til Real Madrid. Óljóst er hvort það gerist á síðustu dögum félagaskiptagluggans eða næsta sumar.

PSG vill gera allt í sínu valdi til að halda Mbappe og var Lionel Messi fenginn til félagsins til að sannfæra Mbappe um að vera áfram. Cristiano Ronaldo hefur einnig verið orðaður við PSG undanfarna daga.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner