Luciano Spalletti var rekinn upp í stúku eftir að Inter skoraði sigurmark á 94. mínútu gegn Sampdoria um helgina.
Spalletti fagnaði sigurmarkinu af miklum ákafa en dómarateymi leiksins mat það þannig að hann hafi verið að ögra fjórða dómaranum með fagnaðarlátunum.
Spalletti hefði því átt að sitja upp í stúku í kvöld þegar Inter tekur á móti Fiorentina en ákvað að áfrýja dómnum.
Áfrýjunin var tekin gild og bannið fellt niður, en Spalletti þarf að greiða 5000 evru sekt í staðinn.
Athugasemdir