Atvinnumenn í fótbolta hafa ágætis frítíma og nýta margir þeirra hann í spila tölvuleiki á PlayStation.
Mane hefur aldrei spilað Playstation og ætlar aldrei að gera það ef marka má ummæli hans sem eru birt hjá Marca.
„Ég hef aldrei spilað PlayStation. Ég tel að það sé eitthvað sem sóar tíma þínum. Ég vil ekki sóa mínum tíma fyrir ekki neitt," segir Mane.
Mane er mjög einbeittur á fótboltann. Hann steig síðast inn á næturklúbb þegar hann lék með RB Salzburg í Austurríki.
Eftir að hafa skorað 45 mörk í 87 leikjum með Salzburg fór Mane til Southampton og síðan til Liverpool. Hjá Liverpool hefur hann verið frábær.
Athugasemdir