Davíð Þór Ásbjörnsson, leikmaður Fylkis í Pepsi-deildinni, skoraði magnað mark fyrir liðið gegn KA er liðin mættust í æfingaleik í Tyrklandi í dag.
Bæði Fylkir og KA æfa í Bielek í Tyrklandi og mættust í æfingaleik í dag en Davíð virðist njóta sín vel í sólinni og var í gír í leiknum.
Hann skoraði gullfallegt mark af 30 metra færi. Hann smellhitti boltann sem fór hátt upp í loftið og hafnaði svo í netinu.
Hægt er að sjá markið hér fyrir neðan en Fylkir vann leikinn 2-1.
Davíđ Ásbjörns skorađi sigurmarkiđ á móti KA í dag međ þrumufleyg af 30 metrum @fylkirmfl #fotboltinet pic.twitter.com/Kwv6sCZhOf
— Hrafnkell Helgi Helgason (@HHelgason7) March 26, 2019
Athugasemdir