Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fös 26. mars 2021 17:30
Magnús Már Einarsson
Kante dregur sig úr franska hópnum - Heim til Chelsea
Mynd: Getty Images
Miðjumaðurinn N'Golo Kante meiddist í landsleik Frakklands og Úkraínu má miðvikudag.

Kante spilaði allan leikinn í 1-1 jafntefli en hann fann fyrir meiðslunum eftir leik.

Kante ákvað í kjölfarið að draga sig úr franska hópnum og verður hann því fjarri góðu gamni gegn Kasakstan og Bosníu-Hersegóvínu.

Hann mun nú snúa aftur til Englands og verða í meðhöndlun hjá sjúkrateymi Chelsea.

Næsti leikur Chelsea er gegn WBA þann 3. apríl en það skýrist á næstu dögum hvort Kante nái þeim leik.
Athugasemdir
banner
banner