Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 26. maí 2021 13:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Torres að taka skóna af hillunni - Skýrist á föstudag
Mynd: Getty Images
Fernando Torres, fyrrum leikmaður Atletico Madri, Liverpool og Chelsea lagði skóna á hilluna í ágúst 2019 eftir stutta dvöl hjá Sagan Tosu í Japan. Þá hafði hann leikið sem atvinnumaður í átján ár.

Torres er 37 ára og hefur eitthvað verið í hnefaleikum frá því hann lagði skóna á hilluna. Hann byggði upp vöðvana og vakti mynd af honum gjörbreyttum mikla athygli.

Torres gaf út á Instagram í gærkvöldi að hann væri að snúa til baka á völlinn.

„Einungis ein leið er mér skiljanleg í lífinu: sú að spila fótbolta. Þess vegna hef ég ákveðið að snúa til baka. Á föstudaginn mun ég láta vita hvar ég spila," skrifar Torres.


Athugasemdir
banner
banner