Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 26. desember 2020 08:00
Victor Pálsson
Guardiola: Mörkin koma ekki frá jólasveininum
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola heimtar meira frá sínum mönnum fyrir leik gegn Newcastle í ensku úrvalsdeildinni í kvöld.

Man City hefur gert tvö jafntefli í síðustu þremur deildarleikjum sínum og hefur verið í basli með að skora mörk.

Guardiola og hans lærisveinar hafa aðeins skorað 19 mörk fyrir leikinn í kvöld en öll önnur lið fyrir ofan 8. sætið hafa skorað 25 eða fleiri.

„Við þurfum að spila betur... Mörkin koma ekki frá jólasveininum," sagði Guardiola við blaðamenn.

„Það er skilyrði að vinna næsta leik og leikinn eftir það. Við vorum í níunda sæti síðustu helgi og nú erum við í því áttunda."

„Við erum langt frá toppi deildarinnar. Við eigum inni leik sem við þurfum að vinna."
Athugasemdir
banner
banner
banner