Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 27. júní 2020 17:49
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
2. deild: Kórdrengir með annan sannfærandi sigur
Kórdrengir hafa unnið báða leiki sína 3-0.
Kórdrengir hafa unnið báða leiki sína 3-0.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Kórdrengir 3 - 0 Dalvík/Reynir
1-0 Jordan Damachoua ('44 )
2-0 Aaron Robert Spear ('48 )
3-0 Þórir Rafn Þórisson ('66 )
Lestu nánar um leikinn

Kórdrengir eru á toppi 2. deildar karla eftir sinn annan 3-0 sigur í röð. Kórdrengir tóku á móti Dalvík/Reyni í dag.

Leikurinn var frekar jafn framan af, en í lok seinni hálfleiks komust Kórdrengir yfir þegar Jordan Dmachoua skoraði. Staðan var 1-0 í hálfleik fyrir heimamenn.

Aaron Spear skoraði tvennu í fyrsta leiknum og hann kom Kórdrengjum í 2-0 snemma í seinni hálfleiknum. Eftirleikurinn var erfiður fyrir Dalvík/Reyni og um miðjan seinni hálfleikinn skoraði Þórir Rafn Þórisson síðasta mark leiksins fyrir Kórdrengi.

Lokatölur 3-0 sem eru á toppi deildarinnar með sex stig. Einnig eru Haukar og Njarðvík með sex stig. Dalvík/Reynir er með eitt stig eftir fyrstu tvo leikina.


Önnur úrslit:
2. deild: Njarðvík hafði betur á Selfossi
Athugasemdir
banner
banner