Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 27. ágúst 2022 18:40
Ívan Guðjón Baldursson
Atletico að senda Renan Lodi til Forest - Vilja Reguilon í staðinn
Mynd: Getty Images

Atletico Madrid er búið að ná samkomulagi við Nottingham Forest um félagsskipti Renan Lodi en þau gætu velt á því hvort spænska stórliðinu takist að krækja í Sergio Reguilon frá Tottenham.


Forest borgar 5 milljónir evra til að fá Lodi lánaðan í eitt tímabil og getur keypt hann fyrir 30 milljónir til viðbótar.

Atletico vill fá Reguilon lánaðan þar sem Antonio Conte vill losna við hann enda með bæði Ivan Perisic og Ryan Sessegnon í sömu stöðu.

Spánverjarnir þurfa að fá vinstri bakvörð inn ef þeir ætla að hleypa Lodi út og því gætu félagsskipti hans til Forest velt á því hvort Atletico nái samkomulagi við Tottenham.


Athugasemdir
banner
banner