Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 27. ágúst 2022 22:58
Brynjar Ingi Erluson
Belotti á leið til Roma
Andrea Belotti er á leið til Roma
Andrea Belotti er á leið til Roma
Mynd: Getty Images
Ítalski landsliðsframherjinn Andrea Belotti er að ganga í raðir Roma á frjálsri sölu en þetta fullyrðir félagaskiptakóngurinn Fabrizio Romano á samfélagsmiðlum.

Belotti, sem er 28 ára gamall, hefur verið án félags síðan í lok júní eða þegar samningur hans við Torino rann sitt skeið.

Framherjinn sterki skoraði 113 mörk í 251 leik fyrir Torino hefur þá spilað 44 landsleiki og skorað 12 mörk.

Roma hefur unnið að því að fá Belotti í allt sumar og nú er allt klappað og klárt samkvæmt Romano.

Belotti komst að samkomulagi um kaup og kjör fyrir nokkrum vikum og hefur þá staðist læknisskoðun en hann verður kynntur hjá Roma á næstu dögum.

Jose Mourinho, þjálfari Roma, hefur talað opinskátt um áhuga sinn á Belotti og nú hefur hann loks klófest leikmanninn.
Athugasemdir
banner
banner
banner