Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mið 27. nóvember 2019 11:39
Elvar Geir Magnússon
Beraði kynfæri sín fyrir framan táningsstúlku og móður hennar
Shipperley mætir fyrir dóm.
Shipperley mætir fyrir dóm.
Mynd: Skjáskot
Neil Shipperley, fyrrum leikmaður í ensku úrvalsdeildinni, bíður dóms eftir að hann „flassaði" fyrir framan mæðgur.

Shipperley, sem er 44 ára, segist fullur eftirsjár og viðurkennir að eiga við vandamál að stríða.

Shipperley lék með Chelsea, Southampton, Crystal Palace, Nottingham Forest og Sheffield United á árunum 1992-2007.

Shipperley gaf sig sjálfur fram til lögreglu eftir að fórnarlömb hans tilkynntu um hegðun hans.

Móðir var að rölta með sextán ára dóttur sinni þegar Shipperley keyrði bíl sínum hægt við hlið þeirra. Þær tóku svo eftir því að hann hafði opnað glugga á bílnum og beraði kynfæri sín.

Þær héldu ferð sinni áfram en Shipperley keyrði á eftir þeim, stöðvaði bílinn og virtist fróa sér. Mæðgunum var skiljanlega mjög brugðið og lögðu fram kæru.


Athugasemdir
banner
banner
banner