Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 27. nóvember 2019 08:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Heimild: Íslendingavaktin 
Böðvar aftur í liði vikunnar - Skoraði sitt fyrsta mark
Böðvar og Óttar Magnús Karlsson.
Böðvar og Óttar Magnús Karlsson.
Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson
Bakvörðurinn Böðvar Böðvarsson er í liði vikunnar í pólsku úrvalsdeildinni eftir að hafa skorað sitt fyrsta mark fyrir Jagiellonia Bialystok um síðustu helgi.

Böðvar kom til Jagiellonia frá FH í janúar á síðasta ári.

Sjá einnig:
Böddi löpp um markið: Segjum að þetta hafi verið skot

Böðvar átti tilraun sem fór af varnarmanni og inn. Um markið sagði hann: „Tilfinningin var frábær, ég hef ekki skorað í þrjú ár. Það var kominn tími til að skora eins og eitt stykki. Ætli þetta hafi ekki verið skot, segjum það að minnsta kosti."

Hann er í liði umferðarinnar eins og sjá má hér að neðan, en þetta er í annað sinn í þremur umferðum sem Böðvar er í liði umferðarinnar.


Athugasemdir
banner
banner
banner