Antonio Conte knattspyrnustjóri Chelsea stjórnaði sínum mönnum til sigurs í gær þegar liðið mætti Brighton.
Niðurstaðan var 2-0 sigur Chelsea en Conte talaði um það eftir leikinn að þeir hefðu haft heppnina oftar með sér á síðasta tímabili.
„Í fyrri hálfleik fengum við góð færi en nýttum þau ekki, í svona aðstæðum eins og í dag er erfitt að skora þegar andstæðingarnir eru með tíu menn fyrir aftan bolta."
„Þetta var svipuð frammistaða eins og á móti Everton, á móti þeim áttum við 25 skot að marki og ekkert þeirra vildi inn en í dag fór boltinn hins vegar tvisvar inn."
„Þetta tímabil hefur spilast á annan hátt en það síðasta. Á síðasta tímabili vorum við að vinna leiki eins og leikinn á móti Everton og við vorum heppnari þá," sagði Ítalinn Antonio Conte.
Athugasemdir