Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   fös 27. desember 2019 22:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Guardiola: Óraunhæft að ná Liverpool úr þessu
Pep Guardiola.
Pep Guardiola.
Mynd: Getty Images
Pep Guardiola knattspyrnustjóri Manchester City fór með lærisveina sína í heimsókn til Wolves í kvöld, það gekk á ýmsu í leiknum sem Wolves vann 3-2.

Ederson fékk rautt spjald á 12. mínútu og City menn voru því manni færri stóran hluta leiksins. Guardiola var að vonum svekktur þegar hann mætti í viðtal eftir tapið.

„Áttatíu mínútur, tíu á móti ellefu er mjög erfitt. Við gátum ekki haldið þetta út."

„Við þurfum núna að hugsa um næsta leik og að vinna leikina okkar. Það er óraunhæft að ná Liverpool úr þessu, svo tekur við annar leikur eftir 48 klukkutíma," sagði vonsvikinn Guardiola.

Manchester City tekur á móti Sheffield United á Etihad vellinum á sunnudaginn klukkan 18:00.
Athugasemdir
banner
banner
banner