Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 27. desember 2020 06:00
Ívan Guðjón Baldursson
Segja Neymar vera að halda 500 manna skemmtun
Mynd: Getty Images
Brasilískir fjölmiðlar segjast hafa öruggar heimildir fyrir því að Neymar sé búinn að skipuleggja fjöldaskemmtun í heimalandinu þar sem búist er við að 500 manns muni mæta yfir nokkra daga.

Franski boltinn er í jólafríi og því fær Neymar að leika lausum hala í Brasilíu, þrátt fyrir Covid-19 faraldurinn. Neymar er sagður halda skemmtunina í risastórum skemmtistað sem hann lét byggja fyrir utan sveitabæ sinn.

Skemmtunin mun vara í nokkra daga og mega gestir ekki taka síma með sér inn samkvæmt frétt í portúgalska miðlinum O Jogo.

Brasilískir fjölmiðlar hafa verið óvægnir í gagnrýni sinni á Neymar fyrir þetta meinta uppátæki er þriðja bylgja Covid-19 herjar á Brasilíu.
Athugasemdir
banner
banner
banner