Varane, Diaz, Matip, Yamal, Davies og Rashford koma við sögu
   fim 28. mars 2024 09:53
Brynjar Ingi Erluson
Akanji tæpur fyrir leikinn gegn Arsenal
Mynd: EPA
Svissneski varnarmaðurinn Manuel Akanji er að glíma við smávægileg meiðsli og gæti því misst af leik Manchester City gegn Arsenal um helgina.

Akanji meiddist í landsliðsverkefni með Sviss á dögunum en Man City á eftir að skoða hann betur.

Landsleikjatörnin hefur verið skelfileg fyrir Man City en Kyle Walker og John Stones meiddust í leik með Englandi á meðan Matheus Nunes meiddist í leik með Portúgal.

Jack Grealish, Kevin de Bruyne og Ederson eru þá einnig að glíma við meiðsli fyrir þennan mikilvægasta deildarleik tímabilsins hjá Man City.

Man City þarf á sigri að halda til þess að halda í við Arsenal og Liverpool í titilbaráttunni, en liðin eigast við á Etihad-leikvanginum á sunnudag.
Athugasemdir
banner
banner