Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   mið 28. apríl 2021 07:30
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Blikar þunnskipaðir varnarlega gegn KR
Elli Helga
Elli Helga
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Elfar Freyr Helgason og Davíð Örn Atlason munu ekki leika með Breiðabliki þegar liðið mætir KR í fyrstu umferð Pepsi Max-deildarinnar á sunnudag. Róbert Orri Þorkelsson er tæpur og óvíst hvort hann verði með.

Þetta staðfesti Óskar Hrafn Þorvaldsson, þjálfari Breiðabliks, í viðtali við Blikar TV í gærkvöldi.

„Davíð Örn verður ekki klár, Elfar Freyr verður ekki klár og Róbert Orri að öllum líkindum ekki," sagði Óskar.

„Aðrir ætti að vera klárir," bætti Óskar við.

Davíð Ingvarsson og Damir Muminovic verða líklega í vörninni og með þeim eru Oliver Sigurjónsson, Finnur Orri Margeirsson og Viktor Örn Margeirsson líklegir kostir.


Athugasemdir
banner
banner
banner