Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. júní 2018 14:00
Ingólfur Páll Ingólfsson
Kennir hóteldýnu um meiðsli Marcelo
Mynd: Getty Images
Læknir brasilíska landsliðsins segir að bakmeiðsl Marcelo gætu verið tilkominn vegna hóteldýnunar sem leikmaðurinn hefur sofið á undanfarnar nætur.

Marcelo neyddist til þess að yfirgefa völlinn í leik Brasilíu og Serbíu eftir einungis 10 mínútur vegna bakmeiðsla.

Dr. Rodrigo Lasmar sagði við fjölmiðla eftir leik að hann væri bjartsýnn á að Marcelo yrði tilbúinn fyrir leikinn gegn Mexíkó í 16-liða úrslitum á mánudaginn. Hinsvegar þyrfti að greina betur gæðin á svefnaðstöðu leikmannsins.

Það er of snemmt að greina þetta nákvæmlega. Meiðslin getu tengst hóteldýnunni. Við búumst við því besta en þurfum að vera rólegir og sjá hvernig þetta fer næstu daga,” sagði Lasmar.
Athugasemdir
banner
banner
banner