Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   fim 28. júní 2018 20:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Myndband: Ekki annað hægt en að hlæja að Batshuayi
Mynd: Getty Images
Sóknarmaðurinn Michy Batshuayi fékk að byrja þegar Belgía sigraði England á HM í Rússlandi í kvöld.

Adnan Januzaj skoraði eina mark leiksins en það var Batshuayi sem stal sviðsljósinu.

Eftir að Januzaj kom boltanum í netið ætlaði Batshuayi að vera sniðugur og negla boltanum aftur í netið. Það fór ekki betur en svo að Batshuayi negldi boltanum í stöngina og í andlitið á sér.

Sjón er svo sannarlega sögu ríkari. Það er ekki annað hægt en að hlæja að þessu!

Smelltu hér til að sjá myndband á vef RÚV.
Athugasemdir
banner
banner
banner