Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. júní 2020 08:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Klopp: Rauð treyja myndi líta vel út á Jadon
Jadon Sancho.
Jadon Sancho.
Mynd: Getty Images
Jurgen Klopp, stjóri Englandsmeistara Liverpool, segir að það myndi koma sér á óvart ef Jadon Sancho endar hjá félaginu.

Sancho ólst upp hjá bæði Watford og síðan Manchester City áður en hann ákvað að skella sér í ævintýri til Þýskalands og semja við Borussia Dortmund. Hann var í leit að meiri spiltíma og hefur hann slegið í gegn í Þýskalandi.

Kantmaðurinn tvítugi hefur hvað mest verið orðaður við Manchester United, en einnig við Chelsea og Liverpool.

Klopp býst ekki við því að fá Sancho frá sínu gamla félagi. „Rauð treyja myndi líta vel út á Jadon, en ég held að það verði ekki mögulegt að kaupa hann í sumar. Hann (Sancho) er mjög áhugaverður leikmaður. Það myndi koma mér mjög á óvart ef hann myndi koma til Liverpool," sagði Klopp í samtali við Bild.

Talið er að Sancho muni kosta um 100 milljónir punda.
Athugasemdir
banner
banner
banner