Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. ágúst 2021 22:30
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Willian að rifta samningi og fær ekki neitt greitt fyrir það
Willian.
Willian.
Mynd: Getty Images
Brasilíski kantmaðurinn Willian er að rifta samningi sínum við Arsenal.

Frá þessu segir Kaveh Solhekol, fjölmiðlamaður á vegum Sky Sports í kvöld.

Willian á tvö ár eftir af samningi sínum við Arsenal sem mun færa honum 240 þúsund pund í vikulaun en hann ætlar að gefa eftir laun sín til að fara annað.

Hann er að ganga í raðir Corinthians í Brasilíu og mun þar fá 70 prósent lægri laun en hjá Arsenal.

Willian gekk í raðir Arsenal fyrir síðustu leiktíð og var slakur á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu. Núna er hann á förum annað og það kostar Arsenal ekki neitt að losa sig við hann.


Athugasemdir
banner
banner
banner
banner