Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   sun 28. ágúst 2022 16:43
Jóhann Þór Hólmgrímsson
Gakpo staðfestir áhuga frá Man Utd
Cody Gakpo
Cody Gakpo
Mynd: EPA
Antony er á leið til Manchester United frá Ajax en fjölmiðlar telja möguleiki á því að United reyni að fá Cody Gakpo frá PSV einnig.

Gakpo skoraði eitt og lagði upp tvö í 6-1 stórsigri PSV á Excelsior í dag. Hann tjáði sig um áhuga United eftir leikinn.

„Það eru nokkrir möguleikar í stöðunni, United kemur sterklega til greina," sagði Gakpo.

Samkvæmt erlendum fjölmiðlum mun Antony ganga til liðs við United innan tveggja sólarhringa. Kaupverðið er talið vera í kringum 100 milljónir evra.


Athugasemdir
banner
banner