Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   þri 28. september 2021 18:15
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Tvíburarnir framlengja við KA
Þorri er öflugur bakvörður.
Þorri er öflugur bakvörður.
Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Tvíburabræðurnir Nökkvi Þeyr og Þorri Mar Þórissynir hafa framlengt samninga sína við knattspyrnudeild KA og eru nú samningsbundnir félaginu út sumarið 2024.

„Þetta eru frábærar fréttir enda hafa bræðurnir verið ákaflega öflugir í gula og bláa búningnum og orðnir algjörir lykilmenn í KA liðinu," segir í tilkynningu KA.

Bræðurnir, sem eru 22 ára, gengu til liðs við KA fyrir sumarið 2019. Þar áður voru þeir á mála hjá Dalvík/Reyni og hjá Hannover 96 í Þýskalandi.

Nökkvi Þeyr er framherji og skoraði hann þrjú mörk í 19 leikjum í sumar. Hann er núna í heildina búinn að skora átta mörk í deild og bikar fyrir KA.

Þorri Mar leikur aftar á vellinum og stóð sig frábærlega í stöðu bakvarðar á nýliðnu tímabili. Hann var verðlaunaður fyrir frammistöðu sína með því að vera kjörinn efnilegasti leikmaður KA.

KA endaði í fjórða sæti Pepsi Max-deildarinnar á tímabilinu sem var að klárast.
Athugasemdir
banner
banner
banner