Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. október 2019 18:27
Sæbjörn Þór Þórbergsson Steinke
Rúnar Alex byrjar hjá Dijon á morgun
Mynd: Getty Images
Rúnar Alex Rúnarsson hefur þurft að verma varamannabekkinn hjá Dijon síðan í ágúst.

Breyting verður á því annað kvöld þegar Dijon sækir Bordeaux heim í franska deildabikarnum, Coupe De La Ligue.

Stéphane Jobard, stjóri Dijon, staðfesti á blaðamannafundi að Rúnar yrði í markinu annað kvöld. Jobard segir ákvörðunina ekki vera til að þóknast Rúnari. Hann sé með tvo góða markverði.

Rúnar lék síðast í 2-0 tapi gegn Angers þann 31. ágúst. Leikurinn annað kvöld er í 32-liða úrslitum deildabikarsins.
Athugasemdir
banner
banner