Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
banner
   lau 28. desember 2019 08:00
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Forlan: Cavani fullkominn fyrir Atletico
Edinson Cavani.
Edinson Cavani.
Mynd: Getty Images
Edinson Cavani hefur verið sterklega orðaður við Atletico Madrid síðustu vikur og það er ekki ólíklegt að hann muni færa sig yfir til Spánar frá frönsku höfuðborginni í janúar.

Cavani sem er frá Úrúgvæ hefur leikið með PSG frá árinu 2013, hann kom þangað frá Napoli.

Landi hans, Diego Forlan telur að þessi félagaskipti yrðu frábær fyrir bæði Cavani og Atletico Madrid.

„Það væri frábært fyrir Ateltico að fá hann, hann passar mjög vel inn í liðið. Hann er leikmaður sem þeir þurfa einmitt núna og mun reynast þeim vel næstu árin. Hann mun ekki þurfa neinn tíma til að aðlagast og er leikmaður sem Simeone þarf inn í liðið núna," sagði Forlan.

„Ég er viss um að Cavani eigi eftir að sýna sitt besta frá fyrstu mínútu fari hann til Atletico," sagði Forlan um landa sinn.
Athugasemdir
banner
banner