Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   lau 28. desember 2019 08:30
Sigurður Eyjólfur Sigurjónsson
Pedro dreymir um endurkomu til Barcelona
Pedro Rodriguez.
Pedro Rodriguez.
Mynd: Getty Images
Pedro Rodriguez leikmaður Chelsea hefur ekki fengið mörg tækifæri hjá Chelsea undir stjórn Frank Lampard, samningur hans við Chelsea rennur út næsta sumar.

Pedro kom til Chelsea frá Barcelona og honum dreymir um að komast aftur til félagsins einn daginn.

„Ef Barcelona vill fá mig gerði ég allt til að láta það ganga," sagði Pedro.

„Á undirbúningstímabilinu spiluðum við á móti Barcelona, ég spjallaði þar aðeins við þjálfarann og fannst vera möguleiki á því að ég gæti snúið aftur en svo varð ekkert úr því."

„Í augnablikinu sé ég ekki alveg fyrir mér næstu skref nema það að ég er samningsbundinn Chelsea út þetta tímabil," sagði Pedro.


Athugasemdir
banner
banner