Olise, Branthwaite, Gutierrez, Guimaraes, Zubimendi og fleiri góðir í slúðurpakka dagsins
   mán 28. desember 2020 06:00
Guðmundur Aðalsteinn Ásgeirsson
Liverpool fylgist með efnilegum leikmanni Arsenal
Balogun í leik með Arsenal.
Balogun í leik með Arsenal.
Mynd: Getty Images
Hinn 19 ára gamli Folarin Balogun er eftirsóttur þar sem samningur hans við Arsenal rennur út næsta sumar.

Balogun hefur hafnað samningstilboðum frá Arsenal þar sem hann er ekki sannfærður um að hann muni fá nægilega mikið að spila fyrir aðalliðið. Balogun hefur á þessu tímabili komið við sögu í fimm keppnisleikjum og skorað tvö mörk, en enginn þeirra hefur verið í ensku úrvalsdeildinni.

Samkvæmt The Athletic eru Englandsmeistarar Liverpool eitt þeirra félaga sem er að fylgjast með stöðu mála hjá sóknarmanninum.

Það er einnig áhugi á honum frá Þýskalandi og hefur hann verið orðaður við Stuttgart.

Arsenal vonast enn til að sannfæra hann um að vera áfram og hefur Mikel Arteta, stjóri liðsins, talað fyrir því að halda honum hjá félaginu.
Athugasemdir
banner
banner
banner
banner